Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Ég heyri svo vel ég heyri grasið gróa...

28. maí 2008 klukkan 22:23
Eða það sagði læknirinn minn allavega við mig í dag... hehe


Fleira sem ég lærði um sjálfa mig í dag er að:

Ég er víst með nettar tennur (hvað svo sem það þýðir...)

Ég er ofnæmissjúklingur hmmm...

Ég er einni tönnn ríkari en ég var í síðustu tannlæknaheimsókn.... aftur á móti mun ég tapa henni aftur í þeirri næstu.......

Fleira lærði ég nú ekki um sjálfa mig í þessum tveimur læknisheimsóknum mínum. Komst reyndar að því að þetta ofnæmi sem ég er með er það sama og Ívar er með og að öllum líkindum er þetta erft frá pabba. Loks kom skýring á endalausu hnerrunum hans pabba :)

Jæja nóg um veikindi og tanntökur, bið að heilsa öllum sem lesa þetta (sem sagt mömmu :) ...  ).

Kv. Helga
Helga Hauksdóttir
5 athugasemdir

7 Dagar.....

25. maí 2008 klukkan 09:12
Jæja....

Það fer nú að líða að  því að maður nenni þessu ekki....

en ég skal bíða aðeins lengur.....

Og til hamingju Ísland með fínan árangur í gær... 14. sæti er ekki alslæmt. Ég get reyndar ekki fyrir mitt litla líf munað hvernig vinningslagið er.... held að þar hafi eitthvað annað verið á ferð en bara fólk að kjósa besta lagið....

kv. Helga
Helga Hauksdóttir
2 athugasemdir

4 dagar.....

22. maí 2008 klukkan 16:54
Nú hlýtur einhver að fara að ranka við sér...
Helga Hauksdóttir
Engin athugasemd

3 Dagar liðnir....

21. maí 2008 klukkan 20:01
Og enn ekkert komment....

Sjáum hvað gerist :)
Helga Hauksdóttir
Engin athugasemd

Ætli einhver fatti þetta :)

18. maí 2008 klukkan 09:11
Ákvað að prófa að henda inn nokkrum línum bara til að sjá hvort allir væru ekki örugglega búnir að gefast upp á mér.....

Sjáum til hvað það fatta þetta margir :)
Helga Hauksdóttir
Engin athugasemd

Styttist í jólafrí!!

07. desember 2007 klukkan 12:12
Jæja, þá er ég farin að sjá glitta í jólafríið mitt. Bara eftir að skila einu verkefni og klára annað. Ætla að reyna að skila þessu öllu saman í dag.... þá er ég BÚIN JEI!! 

Vildi bara monta mig af þessu þar sem ég hef aldrei verið búin svona snemma.

Ekki það að ég sé að fara að liggja í leti fram að jólum, fer að vinna eftir helgi. En samt, það er samt sem áður smá frí að vera BARA að vinna...

Annað í fréttum er að Gunni átti afmæli í gær. Hann hélt upp á það með því að fara í jarðaför og í kringluna með mér, Önnu og Jóhönnu.... Ekki kannski mest spennandi afmælisdagur í heimi. En í kvöld erum viðað fara fínt út að borða með vinnunni þannig að það verður bara afmælisveislan hans í staðinn..

Bless í bili, ætla að fara að henda út úr mér svona eins og einu stykki verkefni.....

Kv. Helga pelga í jólaskapi
Helga Hauksdóttir
3 athugasemdir

Flöskudagur

09. nóvember 2007 klukkan 09:21
Ef ykkur vantar umræðuefni fyrir kokteilboð helgarinnar þá ætti þessi frétt að koma að góðu gagni:

-Tekin af visir.is-

Í Bretlandi er bannað með lögum að deyja í þinghúsinu í London. Þessi lög þykja þau fáránlegustu þar í landi samkvæmt skoðanakönnun sem bresk sjónvarpsstöð lét gera. Frá þessu er skýrt á fréttavef BBC.

Lög um að ekki megi senda póst með frímerki á hvolfi lentu í öðru sæti yfir fáránlegustu lög Bretlands. Í þriðja sæti voru lög um að konur megi vera berar að ofan á almannafæri í Liverpool, en því aðeins að þær vinni við afgreiðsluborð í gullfiskabúð.

Af öðrum lögum sem lentu á topp tíu listanum má nefna að í Skotlandi er skylda að hleypa fólki inn til að nota klósettið, og í Bretlandi öllu hafa óléttar konur fullt leyfi til að pissa hvar sem er – meira að segja í lögregluhjálma.

Þá mun vera leyfilegt að drepa Skota í borginni York, en þó aðeins ef Skotinn er svo ógætinn að vera með boga og örvar.
Ýmis fáránleg lög frá öðrum löndum voru einnig nefnd í skoðanakönnuninni, þar á meðal lög um að karlmönnum sé bannað að pissa standandi eftir klukkan tíu að kvöldi í Sviss.

Í Florida í Bandaríkjunum mega giftar konur ekki stunda fallhlífarstökk á sunnudögum og í Ohio er bannað að gera fiska ölvaða. Þá er ólöglegt að aka bifreið með bundið fyrir augun í Alabama.

Einnig má nefna að í Indónesíu liggur dauðarefsing við því að fróa sér, en í Frakklandi er bannað að gefa svínum nafnið Napóleon.

Helga Hauksdóttir
4 athugasemdir

30. júlí 2007 klukkan 14:59
Ég lenti í því áðan að þurfa að hringja á ónefnda bensínstöð hér á stór Reykjavíkursvæðinu til að fá smá upplýsingar. Ég hef sjaldan lent í öðru eins samtali og varð bara að deila því með ykkur:

Ring ring
Starfsmaður 1: xxxxxxxxxx Góðan daginn.
Ég: Góðan daginn. Gætiru nokkuð sagt mér hvert þvermálið er á 11 kg.gaskútum?
Starfsmaður 1: Öhhh.... já, bíddu aðeins.

Hálfri mínútu seinna

Starfsmaður 2: Já halló
Ég: Já góðan daginn. Helga heiti ég. Mig vantar upplýsingar um það hversu stórir 11 kg. gaskútar eru. Þvermálið á þeim.
Starfsmaður 2: Já.
Ég: Gætiru sagt mér það?
S 2: Nei, ég veit það ekki.
Ég: Eruð þið með gaskúta?
S 2: Já
Ég: Gætiru mælt fyrir mig hvað þeir eru stórir. Þvermálið á þeim.
S 2: Öhh... Já. Viltu fá að vita lengdina á þeim?
Ég: Nei, breiddina.
S 2: Nei ég get ekki mælt breiddina.
Ég: Afhverju ekki?
S 2: Af því að ég er bara með tommustokk.
Ég: ... Öhh... Geturu ekki mælt bara ofaná kútnum hvað hann er breiður?
S 2: Augnablik.

        2-3 Mínútum seinna

S 2: Hann er svona tveir þrír.
Ég: Ha?
S 2: Svona tveir þrír.
Ég: Tveir þrír hvað?
S 2: Fermetrar.
Ég: Ég þarf að fá að vita hvað hann er breiður.
S 2: Já. Hann er svona sex sjö.
Ég: Sex sjö?
S 2: Já
Ég: Sex sjö tommur?
S 2: Já.
Ég: Geturu ekki sagt mér hvað hann er í sentimetrum?
S 2: Nei.
Ég: ok.... uhm... takk. Bless


Þetta endaði sem sagt með því að ég keyrði heim til mömmu og pabba og mældi kútinn þeirra. Auðvitað með málbandi af því að það er víst ekki hægt að mæla breidd með tommustokk... Til að gera langa sögu stutta þá er 11kg. kútur 30 cm, ekki sjö tommur sem eru 17,5 cm.




 
Helga Hauksdóttir
3 athugasemdir

Sjaldgæfur atburður

12. júní 2007 klukkan 21:11
Ég hef tekið eftir því að því lengra sem líður á milli blogga því meira fer ég að kvíða því að blogga. Eins og að þrýstingurinn um að skrifa almennilegt blogg aukist eftir því sem lengra líður á milli þeirra. En því miður finnst mér ég aldrei geta sagt neitt nógu spennandi. Ekki það að það gerist aldrei neitt hjá mér, heldur veit ég aldrei hvort ég geti sagt frá mínu gráa hversdagslífi á nógu spennandi hátt. Hins vegar hef ég séð hjá öðrum bloggurum að það er alveg hægt. Eftir að hafa gert ýtarlega rannsókn á bloggheiminum tel ég mig hafa fundið leyndarmálið á bak við það að blogga mikið....... LJÚGA OG ÝKJA OG BARASTA BULLA....... Þannig að héðan í frá mun það vera það eina sem frá mér kemur hér. Ef einhver vill heyra eithvað gáfulegt frá mér verður sá hinn sami bara að tala við mig augliti til auglitis (VÁ hvað ég á eftir að fá mörg komment út á þetta.....).

Þannig að, í stuttu máli, hef ég ekkert að segja, en segi það samt!
Helga Hauksdóttir
5 athugasemdir

Vildi bara deila nördaskap mínum með ykkur:

17. mars 2007 klukkan 22:32

Nokkrar frægar setningar frá Freud:


  • America is a mistake, a giant mistake.
  • America is the most grandiose experiment the world has seen, but, I am afraid, it is not going to be a success.
  • Being entirely honest with oneself is a good exercise.
  • Civilization began the first time an angry person cast a word instead of a rock.
  • He that has eyes to see and ears to hear may convince himself that no mortal can keep a secret. If his lips are silent, he chatters with his fingertips; betrayal oozes out of him at every pore. (soldið bitur?)
  • If you can't do it, give up! (flestir væru nú ekki mjög hrifnir af svona tali í dag...)
  • One is very crazy when in love
  • Time spent with cats is never wasted. (catperson are you?)
Verð nú að segja að þó að kenningar hans hafi flestar verið frekar mikið bull þá má hann nú eiga það að margt af því sem hann hefur sagt er ekki alvitlaust. Ég ætla ekkert að taka fram hvaða setningar þarna ég er nest sammála, þið verðið bara að giska á það...
Helga Hauksdóttir
4 athugasemdir